Thursday, April 05, 2007

PáskaBrot

Gleðilega páska fólk gott.... erum búnar að standa í strööhööngu síðan seinast. Erum búnar að fara úr stelpuTrukkum yfir í svaka skvísur og til baka í stelputrukkelsið. Það var semsagt árshátíð í skólanum okkar og við vorum í skipulagsnefndinni og bárum ábyrgð á öllum auglýsingum, sponsorum, skreytingum og fataskápnum... þannig við höfðum nóóóg að gera. Við ákváðum að vera ofurskuttlur og klæddumst kjólum og háhæluðum skóm og gengum um með uppsett hárið... það var mál manna að það hefðu dropið af okkur glæsileikinn... og júúú að sjálfsögðu náði ég að setjast á súkkulaðiköku en það er bara minniháttar fyrir TeamClumsy meðlim.
annars er páskaferier loksins byrjað og því var fagnað í gærkvöld... ok við vorum reyndar að skemmta okkur því Tiina kom í heimsókn frá Kolding, við fundum BESTASTA margarítubar í ALGEIMI... NAMMMMMMMMMMM hættulega góðar margarítur og ef við værum ekki svona sentilmannlegar þá hefðum við getað drukkið okkur undir borðið en þar sem við erum dömur gerðist það náttulega ekki.

ohh já svo vorum við Camilla illa sviknar því Arcade Fire cancelluðu tónleikunum... miiiikið svekkelsi en við sjáum þá bara á Hróa í staðinn.. svo tárin urðu bara þrjú.

nenniggi að blogga meira í bili, BirnA blessar(ég er ekki með guðlast á páskunum heldur er ég að segja bless) og já borðið yfir ykkur af páskaeggjum, ég geri það poooottþétt, mamma sá fyrir að senda mér eitt íslenskt og gott sem reyndar hafði ekki af flugferðina óbrotið, sama bragð :) svo verður smáeggjleit í bakgarðinum... yeyyyyyyyyyj

hey og svo erum við svo yndislegar að gefa ykkur linkinn af MYNDUM frá Girls night out.

2 comments:

Anonymous said...

hahhahahhaha....sjá ykkur á þessum myndum, ég skal ekki neita fyrir það að þið eruð PURE dömur:)..haha og varaliturinn setur alveg punktinn yfir ið, jafnvel kommurnar yfir o í dömur, hmm veitiggi...

en allavega GLEÐILEGA PÁSKA frá okkur öllum:)

Anonymous said...

Ótrúlegar dömur:)