Tuesday, July 15, 2008

Linkar

Var að bæta inn linkum ..... 6 videó um verkefnin sem við höfum gert með hópunum okkar, það eru videó frá 4, 5 og 6 önn..... ef þið hafið áhuga að sjá :)

Friday, July 04, 2008

shitturinn titturinn ég held að þessi síða sé alveg að fara að deyja.....

en allaveganna eins og var skrifað í seinustu færslu þá vorum við að fullu að reyna að klára verkefnið okkar.... skiluðum verkefninu 4 Júní.... .ég (kolla) fór svo í próf þar sem við eigum að svara fyrir verkefnið sem við gerum, þannig 16 juni (fyrsta próf daginn) og Birna 18 juni (seinasta próf daginn)... og stóðum við okkur bara með príði ....sérstaklega hún Birna þar sem gellan nældi sér í hæðstu einkun sem er gefin í danmörku.... ég kalla það DUGGNAÐ....helvíti stolt af henni....
en já síðan 27 júní var útskriftardagurinn okkar.... loksinns komnar með bachelor gráðu ..Bachelor of Science in Medialogy....hljómar svaka FANCÝ...eftir að þetta formlega upp í skóla var búið, var síðan haldið heim til að gera sig tilbúna fyrir strandar grill á amager strönd.... þar sem einn af kennurum okkar bauð upp á smá afmælis veislu, hann var búin að leigja sal rétt hjá stöndinni líka þar sem hann bauð upp á frítt áfengi allt kvöldið ....enda heldi ég að það sé ein af ástæðunum að maður muni ekki allt frá þessu kvöldi..









































við vorum á fullu að mála íbúðina og skila henni af okkur, held að við séum bara helvíti góðar í að mála, fengum auka fjórar hen
dur, Ósk og Maggi voru þarna að hjálpa okkur, þau björguðu okkur avleg rosalega. Þannig að Birna er núna heimilislaus en íbúðin sem ég er flutt í er nú ekki alveg tilbúin... enda verður tekið vel til hendi þegar ég fer aftur til dk. Jammmms við (ég og Mikkel)erum á íslandi núna,,, verðum á íslandi einhvað fram í ágúst. Birna er ekki ennþá komin ...minnir að hún eigi flug 11 júni,,, þannig að hún er að njóta þess að vera í
 fríi,,,eitthvað heyrði ég um bráðákvörðun um að skella sér á Roskilde festival..það væri nú henni lýkt að mæta bara á svæðis ....hehehe.. . allaveganna þá ætla að ég að segja þetta nóg í bili er búin að setja nokkrar myndir inn á facebook ...nenni ekki að fara að búa til albúm fyrir bloggið núna ....kanski seinna :D


loksinns fékk mikkel að smakka bæjarins bestu ....híhíhí

Wednesday, May 28, 2008

HHuuummm ætli flestir séu hættir að lesa bloggið okkar,,, engar kvartanir um bloggleysi ...

Ætli það sé ekki kominn tími á smá blogg ...sem verðu reyndar ekki langt, því í raun og veru ætti ég ekki að vera eyða tíma að skrífa blogg..... ég ætti að vera að skrifa bachelor verkefnið okkar sem á að skila á miðviku daginn .....úúúúfffff...

Allaveganna eins og felstir eru búinir að fatta þá er skólinn það eina sem við vitum hvað er þessa daganna,, eða réttara sagt er búið að vera seinustu mánuði,,,, ég trúi því bara ekki að þessi önn er búin ...hvert fór allur tíminn. það er svo sem ekkert nýtt, eins og Birna skrifaði hérna í seinustu færslu þá er ég flutt út. Úr 144 fermetra íbúð með bestu gellum í heimi, í 33 fermetra íbúð, en sem betur fer erum við mikkel að fara að flytja í stærra núna í júni... JEI hlakka rosalega til að geta lagt frá mér hluti, án þess að íbúðin líti út eins og ég veit ekki hvað... 
annars var ég og Mikkel að splæsa á okkur eitt stykki myndavél... 
Þetta er nýja beibíið mitt. hehe 
Ætla svo að notfæra mér að fara út og taka myndir þegar við erum búin að skila þessu verkefni.
Læt fylgja hérna tvær myndir sem ég tók út um gluggan hérna heima. því að við höfum ekki tíma til að njóta góða veðursinns. 



Allaveganna þanngað til næst,,, hver veit kanski verðum við komnar með bachelor gráðu næst þegar þið heyrið í okkar... :D

Tuesday, April 08, 2008

ooog

... það er alltaf sama sagan af okkur, Kolla flutti út í mars og við Milla fengum nýjan húsfélaga... það er hann Magnús sem var sá heppni að hreppa titilinn kóngur Limehouse... Við erum þá 2 strákar vs tvær stelpur... og fljótlega hlítur að fara verða PS Burnout keppni þar ísland - finnland- danmörk keppa shjiiii gæti maður orðið eitthvað meira nörd.... og er stolt af :)

... við náðum öll saman forrituninni 

... náðum öll stærðfræðinni

... og öll náðum við líka theory of science

... SVO eina sem við þurfum að gera núna er að ná næsta prófi sem er á mánudaginn sem við mætum að sjálfsögðu fersk í og verjum litlu ritgerðina okkar sem við skrifuðum í leturstærð 8 eða eitthvað til að halda henni innan blaðsíðufjöldans, ooooh við erum svo sniðug

... og þá mun bara BACHELORprófið vera eina sem eftir er að massa og þá er komin gráða á línuna

... og svo á föstudaginn þá strílum við okkur í partýgallan, morðhælana og mellumálninguna og förum á árshátíð og í þetta skiptið erum við EKKI að sjá um PR málin og planið er að verða argangi fersk með allar tær votar

ræræræ.....

... svo er það þjóðarstolts teiti í nýja slottinu hjá óskipósk á laugardaginn

... og ekki nóg með að næsta helgi verður eitthvað spes með lærerí þá var seinasta tekin með skemmtilegheitum líka

... okkur var semsagt boðið að koma með 4ðu annar verkefnin okkar á NEXT5 innovation confrence i århus, ég með SoundGrabber og Kolla með WobbleBoard Active.... Kolla og Milla fóru en ég ákvað að nýta tímann meðan hópurinn minn væri á ráðstefnunni og skella mér í staðinn til íslands.... en fyrst með ráðstefnuna þá slógu verkefnin okkar í gegn og það liggur boð fyrir að ef við gerum eitthvað svona svakalega svalt aftur þá erum við velkomin aftur... ég er smá svekkt að hafa misst af þessu því þetta er náttulega gott publicity en það var SAMT algjörlega þess virði að fara heim til íslands og hitta 3gja mánaða Leu Lys barn Höllu systir... eitt fAllegasta barn sem ég hef séð og hef ég nú séð þau falleg.... svo kom í ljós að ég er líka svaka klár með ungabörn.... þangað til þau gubba samt, þá panikka ég pínu. ohh það var svo gottog yndislegt að komast heim smá.

yfir og út, Hilsen BirnaRún 




Friday, February 29, 2008

próf ...hvað er málið

já eins og Birna nefndi í seinustu færslu.... þá er margt að gerast hjá okkur núna.....
ég er semsagt frá deiginum í dag flutt út.... ég verð nú að viðurkenna það að þótt að ég sé ekki búin að búa/vera heima í Herlev í nokkra mánuði, þá var svolítið skrítið að standa í tómu
 herbergi ..... og skrítnasta við þetta allt saman er að flytja frá stelpunum ..... sérstaklega Birnu þar sem við erum búnar að búa saman í hhhhuuummmmm,,,,, VVÁÁÁ ...4 ár ..(Birna hvað kom fyrir ...ekki neina danska stráka ..takk...) híhí magnað hvað hlutirnir breytast. 
En já Birna og Camilla halda íbúðinni fram í endaðan júni, vonandi á þeim tíma verða þær komnar með íbúð eða kollige (herbergi).....ekki væri slæmt ef ég fengi þær bara sem nágranna hérna þar sem ég bý núna.

Allaveganna... núna er bara próflestrar helgi...úúúffffff maður er ný búin með jóla/janúar törnina og strax komin önnur... þetta er nú meira ruglið....

jamms jamms og jæja ... það er ótrúlegt hvað maður hefur ekkert að segja.....

Ég (við) erum svona eiginlega búin að ákveða að koma til íslands í sumar, ég vonandi að vinna hjá Innnes og Mikkel sem smiður en við erum svona að bíða eftir því að binda seinustu endana saman og ég held að Birna sé líka að koma til íslands í sumar.... þannig að það er eins gott að fara að plana eitthvað ... við viljum fá útileigu partý... grill partý ... sumarbústaðar djamm og allan pakkan ..:D

ætla að hætta þessu rugli núna og fara að horfa á bíómynd .... :)

HEJ HEJ.......

 læta fylga smá með ...gggoooooddddd times...


ein svona rétt rúmlega venjuleg af okkur..


BBBOOONNN  AAANNNEEEE..París.


Birna og Camilla (stelpu bond)

málingar dagur uppi í skóla..



Tuesday, February 19, 2008

skóliSkóliSkóóóóli

...Ekki mikið meira um það að segja, erum í einhverju svaðalegasta forritunar/stærðfræði bootcampi sem sögur fara af um þessar mundir. Erfiðis vinna fyrir gráu flögurnar í toppstykkinu. Batchelor önnin small hratt og harkalega á okkur, allir fyrirlestrar eru krammdir inní stundaskránna núna í febrúar og mars þar sem við byrjum á því strembnasta / leiðilegasta að mínu(Birnu) mati. Prófin nýbúin og rétt ókomin aftur, sem sagt bootcampinu verður slúttað með prófum núna eftir minna en tvær vikur.... sössssss ekki mikill tími sem gráu sellurnar hafa til að byggja Artificial intelligence prógrömm sem er thema annarinnar... vúddídúúúú!!! Reyndar er þetta svakalega áhugavert allt saman og mjög skemmtilegt þegar maður loksins nær tökum á þessu, það mætti bara gerast svo miklu miklu hraðar þar sem heilu dagarnir geta farið í trial/error og hárreytingar, aumingja foreldrar mínir eru hættir að þora að hafa samband þar sem ég verð alltaf svo rosalega úrill eftir alla þessa heila áreynslu.

Annars er rosa mikið í fréttum og mikið að ske hérna í limehúsinu okkar ITS AN END OF AN ERA. Þar sem ég vill ekkert fara að slúðra neinu þá verður fólk að pressa á annað fólk (semsagt ekki mig) til að fá það safaríkasta hihihi :)
End of an era er samt að við erum að flytja. Keyptum þrjár íbúðir í raðhúsalengju í Lyngby.

Reyndar ekki svo gott en við erum samt að flytja. Erum að liggja á bæn fyrir Kollegi íbúðum í sama kolleginu svo við getum verið nágrannar.
Svo ef einhverjum vantar sófa og/eða hægindastóla í góðu standi þá endilega komið og pikkið það upp hingað til Herlev.

jæja svo ég vitni í Millu þá verð ég að fara að gera e-ð að viti
LEARN MATH OR DIE TRYING!!
adios

Monday, January 28, 2008

FRÍÍFRÍFRÍ

Það er hún ég Birna sem Pikkar inn í þetta skiptið:
Ég braut spegil í dag.... hef þar með kallað yfir mig sjö ára ógæfu. Sit núna heima og er að velta fyrir mér hvað ég get gert af mér sem kostar sem minnsta áhættu. Ætlaði að fylla uppí gatið á klósetthurðinni með spasli þegar túpan rifanði í öfugann endann og spaslið frussaðist á mig alla og útum gólf.... sumsé ógæfan byrjuð. Gæti að sjálfsögðu skrifað þetta á almennan klunnaskap en mér fynnst meira töff að kenna speglaóheppninni um. Almenni klunnaskapurinn hefur blómstrað í mér síðan ég man eftir mér en svo kynntist ég Kollu og þá í einu vetvangi var ég orðin manneskjann sem FYLGDI uppá slysó. Síðan ég og Kolbrún fórum að búa saman fyrir 3oghálfu ári þá hefur Kolla þurft að þola ótrúlega seinheppin skakkaföll. En núna verð ég að byrja að verða vör um mig...reyndar búin að fara einusinni uppá slysó á þessu ári, brenndist á kaffi og ég ætla að skrifa það á fyrirfram greidda speglaóheppni. Á morgun ætla ég að fara beinustu leið uppí tryg og tryggja mig í bak og fyrir.
góðar stundir gott fólk